|
Lokal - leiklistarhátíð framundan |
LÓKAL – alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 1.- 5. sept. n.k. Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn og í ár er lögð sérstök áhersla á nýjar og spennandi leiksýningar frá Norðurlöndunum. Einnig verður boðið upp á listamannaspjall eftir sýningar og efnt til málþings um nýjustu strauma og stefnur í norrænu leikhúslífi. Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar: www.lokal.is eða smellið á hlekkinn að neðan. |
|
andre sprog / other languages
|
|
Torghátíðin á Óðinstorgi á Menningarnótt þótti takast afar vel en hún var með norsku þema að þessu sinni. Nokkur fjöldi fólks fylgdist með tónleikum og upplestrum á stóra sviðinu, en þar komu meðal annars fram norskir kórar sem voru hérlendis á alþjóðlegu kóramóti. Tónlistardagskráin var annars afar fjölbreytt og spannaði allt frá einlægum trúbadorsöng gegnum sprækt indípopp til metalrokks af þyngri sortinni. Brauðbær bauð upp á góðar veitingar og íbúar við torgið höfðu ýmsan varning til sölu.
Mikill gestagangur var á skrifstofu Norræna félagsins fram eftir degi þar sem börn föndruðu sér kórónur og máluðu listaverk og fullorðnir skoðuðu sýningu á textílverkum og tóku þátt í maraþonprjóni á norskum trefli. Gestum gafst kostur á að giska á fjölda tannstöngla í krukku og þrír getspakir einstaklingar unnu sér inn gjafakörfu með vörum frá Jordan, Toro og Real Turmat. Réttur fjöldi tannstöngla var 2906 og þeir sem komust næst réttri tölu voru María Másdóttir, Guðrún Sveinsdóttir og Eva Dögg Þorkelsdóttir Diego.
Norræna félagið vill þakka öllu því góða fólki sem kom fram á Torginu Óða og aðstoðaði við framkvæmd hátíðarinnar auk þess sem samstarfs- og styrktaraðilar fá kærar þakkir en það eru Brauðbær, Norska sendiráðið, Nordmannslaget, Jøtun málning frá Húsasmiðjunni, Dalegarn frá A4, Lindsay og Innes. |
|
|
Torgið Óða á Menningarnótt |
Norræna félagið stendur fyrir tónleikum á Óðinstorgi á Menningarnótt með upprennandi stjörnum í bland við nokkra af ástsælustu listamenn þjóðarinnar. Dagskráin er með norsku þema og norskir kórar, einleikarar og popparar koma fram. Gestir og gangandi geta tekið þátt í maraþonprjóni á norskum trefli og skoðað textíllistaverk á skrifstofu Norræna félagsins á meðan að börnin mála og föndra á staðnum. Svo er hægt að kaupa sér ljúfar veitingar í tjaldi Brauðbæjar á torginu. Smellið á hlekkinn til að sjá dagskrána. |
|
andre sprog / other languages
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 39 |