|
Lýðháskólanám á Norðurlöndunum Fólk á öllum aldri getur lagt stund á nám í norrænum lýðháskólum. Á öllum Norðurlöndum nema Íslandi eru lýðháskólar þar sem í boði er fjölbreytt nám, góð aðstaða og þroskandi námsumhverfi fyrir fólk á öllum aldri. Lýðháskólanám er fyrir alla, óháð skólagöngu og reynslu, en námsefnið og námsferlið er mótað eftir þörfum nemendahópsins; fjölbreytt nám og góð aðstaða er í boði. Styrkir til lýðháskólanáms Undanfarin misseri hefur Norræna félagið á Íslandi veitt íslenskum nemendum á Norrænum lýðháskólum styrki. Lýðháskólastyrkir félagsins eru háðir fjárveitingu frá NORDPLUS VOKSEN. Umsóknarfresturinn rennur út 1. júlí fyrir haustönn og allt árið og 1. desember fyrir vorönn. Norrænu félögin í Danmörku og Noregi hafa einnig veitt styrki til lýðháskólanáms. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Norræna félagsins. Tenglar á vefsíður upplýsingaskrifstofa lýðháskólanna
Danmörk: www.folkehojskoler.dk Finnland: www.folkhogskolor.fi Sænskumælandi skólar í Finnlandi: www.folkhogskolor.fi/svenska/index.php Svíþjóð: www.folkhogskola.nu Noregur: www.folkehogskole.no Færeyjar: www.haskulin.fo/ Álandseyjar: www.afhs.aland.fi/ Grænland: www.krh.gl/
|