Forsíða
Valmynd
Forsíða
Um Norræna félagið
Fréttir og pistlar
Á döfinni
Fríðindi félagsmanna
Ganga í Norræna félagið
Ungmennastarf
Vinabæjastarf
Lýðháskólanám
Tenglar
English
Dansk
Verkefni
Norden Voyager
Halló Norðurlönd
Nordjobb
Snorraverkefnin
Norðurlöndin í bíó
Norræna bókasafnsvikan
Svona gerum við
Formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2009
Dagatal
« < September 2010 > »
M T W T F S S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Með aukinni þekkingu og vináttu þróum við einstaka möguleika á samvinnu milli Norðurlandanna.  Þessi samvinna auðveldar líf okkar, gerir það skemmtilegra og eykur gagnkvæman skilning auk þess að bjóða upp á nýja strauma  í félags-, menningar- og umhverfismálum.

Allir sem vilja fylgjast með starfi Norræna félagsins, fjölbreyttum tilboðum, viðburðum, fréttum og öðru áhugaverðu sem snertir Norðurlönd og norrænt samstarf ættu að skrá netföng sín hjá Norræna félaginu. Við sendum reglulega út spennandi tilkynningar. Skráið ykkur á póstlista Norræna félagsins með því að senda okkur skilaboð á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

Nordisk forum á Facebook
Stofnaður hefur verið umræðuvettvangur á Facebook um norræn málefni undir yfirskriftinni Nordisk Forum. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í brennandi umræðu um allt sem snertir norrænt samstarf eru hvattir til að skrá sig í hópinn.
Hér er aðgangur að Nordisk Forum á Facebook: http://www.facebook.com/group.php?gid=80348411532&ref=ts
 
Norrænn áttaviti
Ísland hefur formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2009. Yfirskrift formennskuáætlunarinner er Norrænn áttavitti, Det nordiske kompas. Sérstakur formennskuvefur er kominn í loftið www.norden2009.is - svo og formennskuáætlun á prenti og nokkrar áætlanir sviða, m.a. mennta og menningarsviðs.
 
Norræna félagið

Norðurlönd eru stórt, fallegt og fjölbreytt svæði sem rúmar fimm sjálfstæð ríki, þrjú sjálfstjórnarsvæði, fjölda þjóða, þjóðarbrota og tungumála og ekki síst iðandi mannlíf og menningu sem byggir á fornum arfi en nýtur í vaxandi mæli fjölþjóðlegra áhrifa. 

Norræna félagið er stórt, skemmtilegt og skapandi félag sem rúmar alla sem hafa áhuga á að efla tengsl milli Norðurlandanna og auka náið samstarf þeirra á fjölmörgum sviðum. Við viljum að það sé auðvelt og aðgengilegt að leita tækifæra til náms, atvinnu og ævintýra um öll Norðurlönd og Norræna félagið vinnur að því með öflugu félagsstarfi og fjölþættri þjónustu við einstaklinga, samtök og stofnanir.

Meðal daglegra viðfangsefna Norræna félagsins eru: Nordjobb, Upplýsingaþjónustan Halló  Norðurlönd, Norðurlöndin í bíó, Norræna bókasafnavikan - Í ljósaskiptunum, norrænt vinabæjasamstarf, Nordklúbburinn, norrænt höfuðborgasamstarf, Vox Borealis, Snorraverkefnið, Snorri-West, Norræn jól, fjölbreytt tungumálanámskeið, íslenskunámskeið fyrir Norðurlandabúa, Norðurkollunámskeið, viðburðir á vetrarhátíð, menningarnótt og öðrum bæjarhátíðum, Café Norden og margt, margt fleira.

Við bjóðum nýja félaga velkomna til þátttöku í  starfi Norræna félagsins á Íslandi og til að leggja lóð á vogarskálarnar við mótun starfsins í framtíðinni. Félagið byggir á traustum grunni hugsjóna um frið milli landa og þjóða og virðingu og réttsýni í umgengni við umhverfi og náttúru. Þessar hugsjónir voru skýrt mótaðar eftir fyrra stríð þegar félögin voru stofnuð um öll Norðurlönd. Norrænu félögin hafa frá upphafi beitt sér fyrir auknu samstarfi milli Norðurlandanna á fjölmörgum sviðum og áttu m.a. á sínum tíma stóran þátt í því að Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin voru stofnuð. Bræðralag Norðurlandanna hefur skapað mikilvægann vettvang samstarfs og stuðlað að sameiginlegri þróun sem vakið hefur athygli um allan heim og þykir til fyrirmyndar og eftirbreytni. En verkinu er síður en svo lokið. Samfélagið á Norðurlöndum tekur  breytingum og umheimurinn færist sífellt nær þannig að vettvangur starfsins víkkar stöðugt og viðfangsefnin hrannast upp. Þær hugsjónir sem starf Norræna félagsins byggir á hafa kannski aldrei átt betur við en einmitt nú. Ábyrgðin sem þeim fylgir er ærin og verkefnin óþrjótandi.

Komdu og vertu með okkur í mikilvægu, spennandi og gefandi starfi.  

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 29 - 32 af 39
Félagsdeildir
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri
Nordklúbburinn
Kópavogur
Reykjavík
Mosfellsbær
Akranes
Borgarnes
Stykkishólmur
Patreksfjörður
Ísafjörður
Skagaströnd
Blönduós
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Akureyri
Húsavík
Hérað
Höfn
Selfoss og nágrenni
Hveragerði
Þorlákshöfn
Reykjanesbær
Hafnarfjörður
Garðabær
Uppsveitir Árnessýslu
Rangárvallasýsla og Mýrdalshreppur
Sveitarfélagið Garður
Álftanes
Vestmanneyjar
Fjarðabyggð
 
Norræna félagið • Óðinsgötu 7 • 101 Reykjavík • s. 5510165 • norden (hjá) norden.is